Goonsieblogg

Name:
Location: Reykjavík, Iceland

bíddzu, allts í rugli hénna...

Tuesday, June 06, 2006

Sukka í blogginu.....

Það fer náttúrulega ekki á milli að mála að ég er einn lélegast bloggari Íslands um þessar mundir og það má alveg reyna að refsa mér fyrir það. Svo mikið (ehem...) hefur drifið á daga mína síðan ég útskrifaðist að það er engu lagi líkt.... Gatnamálastjóri stelur öllu sem heitir orka úr líkama mínum og frítímum eyði ég í að detta hressilega íða til að bæta upp fyrir allar edrú helgarnar núna fyrr í vor. Svo er ég bara að bíða eftir Tyrklandsferðinni miklu í júlí.
Núna til dæmis er ég ennþá að jafna mig eftir Reykjavík tropik hátíðina sem haldin var um helgina í tjaldi fyrir utan Háskólan. Þar voru fullt fullt af skemmtilegum böndum að spila og allir voru í þvílíkt góðum fíling, með vinum og öli. Þetta ætti að vera árlegur viðburður eins og Airwaves. Engin orð eru til um það hversu gaman það var en ég get fullvissað ykkur um það að það verður langt þangað til ég dett svona ærlega íða í 4 daga í röð. (Airwaves í oktober baby) Nóg um öl.

Að útskrift.

Nú er ég stúdent. Ég veit eiginlega ekki alveg hvað ég á að segja meir um það.... Ætla allavega ekki strax í Háskólann. jú ég get sagt ykkur hvað ég fékk í útskriftagjöf. Fékk útskrifta-kynbombukjólinn, blóm og mynd frá múttu. Frá Eyrúnu fékk ég vísindabókina og ljósmyndabók úr 101 Rvk. Takk fyrir það dúllurúsínan mín. Frá systur minni Helgu fékk ég grillhnífaparatösku........ Frá stelpunum "up in the hood" fékk ég World Travel Atlas og bjórkönnu sem segir: Guðný, stúdent '06, rauðvínsflösku og svaka blómvönd. Takk fyrir það skvísulingar.
Pabbi gaf mér monninga upp í Tyrklandsferðina og fl..
Ég held að þetta sé orðið gott í bili...


  • Hljómsveitirnar sem slógu í gegn á Reykjavík Trópík voru:

E.S.G. Kid Carpet, Supergrass, Jakobínarína og Trabant. Og svo voru auðvitað miklu fleiri sem voru hressar líka....

  • Hljómsveit mánaðarins: Vetiver..
  • Plata mánaðarins: To Find Me Gone (vetiver)
  • Lag mánaðarins: You May Be Blue (vetiver)
    Stuðlag vikunnar: You Gonna Want Me (Tiga)
  • Fróðleikur vikunnar: Því miður hef ég ekkert lært gáfulegt í vikunni... ekkert sem ég man sérstaklega eftir. Í dag lærði ég í vinnunni að kolsýrt vatn er ekki það sama og sódavatn. Þetta er kannski eitthvað sem allir vita en engu að síður totally useless imformation að mínu mati...

Þangað til næst! ADJÖ

Friday, May 19, 2006

Gleði

Þá er ég útskrifuð loksins! Við tekur sukk og svínarííí. Ágætis einkunnir, 3 áttur, 1 sjöa, 1 sexa og 1 lítil fimma. nú er það bara útskriftin sjálf eftir og þá fæ ég ða spranga um með hvíta húfu og í æðislegum kjól. (Ef mamma vill gefa ;) En nú ætla ég að detta í íða.
Sjáumst

Friday, May 12, 2006

Dekur sem segir SEX...

Nú er sumarið komið og sex is in the air. Ég hef lokið við verkefnið mitt og sex is in the air.... Ég fór í klippingu og lit og sex is in the air. Fór líka í húðhreinsun og vitiði hvað?! Sex is in the air baby! Nú er bara eitt próf eftir og þá verður bara allur skapaður hlutur orðinn sexy og nasty party, úújé.

Fróðleikur vikunnar:
Undanfarið hef ég vanið komur mínar á Vísindavef Háskólans og skemmt mér yfir allskonar fróðaleik... Þetta er ágætis dægradvöl.. Núna t.d. fann ég asskoti góða spurningu úr föstudagssvörunum sívinsælu. Spurningin er reyndar svolítið gömul en hljóðar svo:

Hvar er mamma?

Starfsmenn vísindavefs svara:

Þessi spurning barst okkur 2. mars 2002. Spurningunni fylgdu meðal annars þær upplýsingar að spyrjandi sé fæddur árið 2001. Ef það er rétt og við fengjum upplýsingar um fæðingardag gætum við gefið eitt einfalt svar við spurningunni. En ef þetta er innsláttarvilla þyrftum við í öllu falli að fá að vita rétt fæðingarár til þess að geta gefið þess konar svar. Við gerum ráð fyrir að lesendur okkar sjái þetta allt í hendi sér og rekjum það nánar sem hér segir:

  • Ef spyrjandi er til dæmis 0-6 mánaða er líklegt að mamma hans sé með hann í fanginu eða hún sé hjá honum. Kannski er spyrjandi úti í vagni og mamma hans þá í kalltækissambandi við hann.
  • Ef spyrjandi er til dæmis þriggja ára er líklegt að hann sé á barnaheimili þegar þetta er skrifað á föstudagsmorgni, og mamma hans í vinnunni.
  • Ef spyrjandi er að minnsta kosti orðinn stálpaður er hann væntanlega í skóla eða vinnu og mamma hans í vinnunni.
  • Ef við værum að svara þessu um miðnætti í kvöld mundum við segja að mamma spyrjandans sé sofandi í rúminu.
  • En á milli 5 og 7 í gær var hún trúlega á líkamsræktarstöð.

Ef spyrjandi á í erfiðleikum í samskiptum við mömmu sína viljum við benda honum á svar Sigrúnar Júlíusdóttur við spurningunni Af hverju þurfa mæður alltaf að vera svona forvitnar og tilætlunarsamar? En ef það gerist mjög oft að hann finnur ekki mömmu sína og þarf að spyrja þessarar spurningar, þá hlýtur önnur spurning að vakna, sem sé hvort hann ætti ekki að leita til barnaverndaryfirvalda eða til umboðsmanns barna. Um slík mál má finna nokkur svör hér á Vísindavefnum undir leitarorðum eins og "uppeldi", "börn" og svo framvegis.

Lag vikunnar að þessu sinni er í samræmi við fróðleik vikunnar: "Hey Mama Wolf" með hinum kynþokkafulla Devendra Banhart.

Plata vikunnar: engin sérstök.... þetta er allt saman splendid!!

Adjö

....Og já, ég lít út eins og hundur með þessa klippingu!! (en snotur hundur samt)

Wednesday, May 03, 2006

The Way to Joy and endless happinessss!!

Það eru alltaf einhverjir plúsar og mínusar (eða uppsar og downsar á eðlilegu máli). Mig langar að telja mína upp fyrir ykkur og auðvitað líka fyrir sjálfa mig svo ég geti áttað mig betur á því að maður á aldrei að taka downsana fram yfir uppsana.... Ég byrja á downsunum af því alltaf þegar þeir eru fyrst teknir fyrir, hverfa þeir í skuggann á uppsunum. Þá getur maður áttað sig á því að þeir eru alls ekkert downsar "after all" ;) Þetta er sjálfshjálpar- sálfræðiaðferð sem hlýtur að vera mikið notuð hér í hinum vestræna heimi, ef ekki, þá er ég bara eitthvað crazy.

Downser 1: Minn helsti downser og óvinur þessa daganna er STÓRA prumpuhlussu-strætóhelv...-verkefnið sem ég á eftir að gera um strætó. Ég er ýkt pirruð að hafa valið jafn leiðinlegt og óáhugavert verkefni til að fjalla um. (allaveganna ekki á mínu áhugasviði). Og ég hugsa að ég mun sjá eftir því alla ÆVI að hafa ekki tekið e-ð annað fyrir, t.d fegurðarsamkeppnir og feminista.... (Það var bannað!!)

Downser 2: Ég á eftir að taka eitt próf þann 15 maí og vegna prumpu..o.s.frv. helv.. verkefninu á ég örugglega ekki eftir að læra nógu vel. (sjáum bara til, kannski reddast það)

Downser 3: Ég er blönk... en það er nú reyndar ekkert nýtt, ég er það alltaf!


Uppser 1: Þegar ég klára prump.tuss.helv verkefnið og þetta skitna próf þann 15 maí get ég farið að máta stúdentshúfuna mína....

Uppser 2: Ég er búin að sjá lóuna (komin fyrir löngu greyið) og í dag hefur verið hellidemba. Það er vorboði og rigningin hreinsar loftið sem að öllum líkindum fer hlýnandi..

Uppser 3: Ég fékk útivinnu í sumar. Það er dásamegt. Vinna úti + náttúruleg þreyta á kvöldin

Uppser 4: Tyrkland 4 júlí..

Uppser 5: Eftir stúdent, snökt og grát af hamingju. Nýtt líf, meiri peningar...(allaveganna meira af þeim)

Uppser 6: Nýtt umhverfi, nýtt fólk, aldrei aftur FB en á þó eftir að sakna fólksins þar..

Uppser 7: Tónleikar með CocoRosie þann 17. maí á Nasa. Ég hef beðið eftir þeim í mange mange mánuði.

Vá... Uppser 8: Sumarið verður yndislegt, úti alla daga, hreyfing, heilbrigði..(ehem) og síðast en ekki síst, mínir heittelskuðu vinir Anna og Benni koma í ágúst....

Skoh! Uppsarnir eru miklu fleiri en downsarnir!! Downser nr 3 er reyndar mjög ómerkilegur, því hver þarf peninga þegar maður á..... jú ok það er mjög mikilvægt líka! Nú þarf ég bara að bretta upp ermarnar og kippa downsunum í lag svo ég geti sprungið úr hamingju og lífsins gleði þann 15 maí klukkan korter yfir 15...

Nýtt sem ég ætla að reyna að hafa vikulega svo þið lesendur góðir getið kynnt ykkur tónlist að eitthverju viti.
Plata vikunnar: "Ease Down the Road" með Bonnie Prince Billy
Lag vikunnar : "Hurdy Gurdy Man" með Donovan

Fróðleikur vikunnar: Sálkönnuðurinn og læknirinn Sigmund Freud expirimentaði með kókaín og hvatti vini sína til að nota það, nokkrir dóu úr of stórum skammti.. Úpps.. og hann reykti 20 vindla á dag..

bæj bæj ...og takk fyrir koooomunaaa!

Monday, May 01, 2006

Asskotans fullkomnun alltaf hreint!

Jæja, það er víst best að drulla svona eins og einni færslu hingað inn. Ég vil byrja á því að óska öllum til hammó með daginn og hvet alla til að fara niður í bæ að spóka sig. Það ætla ég ekki að gera því ég er að manna mig upp í að læra lexíur fyrir próf á miðvikud. Það verður víst lítið að gerast hér á goonsiebloggi næstu 2 vikur eða svo annað en bara bull og þvæla.
Einhverjir voru með heimtufrekju hérna síðast. Vildu sjá myndir af mér í dimmisjónbúingnum.
Hér er ein
jájá, þetta er voðalega
mússímússí.

Talandi um mússí mússí.
sagan af Mússímússí kemur í næsta þætti, má eiginlega ekki vera að þessu núna. Það tekur mig alltaf svo viðbjóðslega langan tíma að blogga þannig að þið getið rétt ímyndað ykkur hvað ég er treg þegar ég er að læra... . .
Tók mig tvo daga að skrifa skítna tveggja síðna grein sem varð að vera FULLKOMIN. Það getur verið svo skelfilega heftandi að þurfa alltaf að gera öll verkefnin sín FULLKOMIN. Dálítið irritating sko! (ekki doldið, neee) Það stefnir allt í uppreYsn hérna....

Adjö

Saturday, April 22, 2006

Ég á mér víst líf...


Ég klæddi lampann minn í dimmisjon búninginn minn.....

oooooog.. tók til í herberginu mínu. Þeir sem þekkja mig almennilega vita hvað ég meina... Það tók mig 7 klukkutíma!! Ein af ástæðunum fyrir þessu stundarbrálæði er sú að ég týndi fullum sígarettupakka hérna inni um daginn en þrátt fyrir mikla leit og vangaveltur er hann enn ófundinn. Ég býst sterklega við því að hann hafi orðið svo hneykslaður greyið á styrjöldinni í herberginu að hann hefur tölt út og náð sér í annann eiganda!

Thursday, April 20, 2006

Dollý litla

Svo virðist sem að svona líka asskoti myndarlegt æxli hefur tekið sé bólfestu ofarlega á nef mitt, vinstra megin. Það hefur sennilega ekki hugsað sér til hreyfings á næstunni, því engar stökkbreytingar hafa komið í ljós. Í viðtali við æxlið fyrir rúmum klukkutíma sagðist það bíða spennt eftir að fleiri “vinkonur” láti sjá sig og vonast til að geta átt gott samstarf með nefi mínu í framtíðinni. Í gegnum tíðina hafi það þróað með sér þann eiginleika að geta haldið sér sem stórtog myndarlegt kýli án þess að hvítt eða grænt myndist í miðju þess. Það þýðir sem sagt ekkert að kreista þennan skratta hvað sem tautar og raular. Það mun hanga þarna og sjá rækilega til þess að valda eigandanum (mér) miklum ama. Þó get ég glaðst yfir því að heimsókn skrattakollsins er aðeins tímabundin.
Ástæðan fyrir þessari annars litlu og ómerkilegu sögu er að þetta snertir mig djúpt. Bólu á nefið hef ég ekki fengið í mange mange ár, svona 6, 7 eða 8 ár. Þess vegna hef ég ákveðið bjóða þessum annars ágæta gesti velkomin og gefið henni nafn og hlutverk: Hún heitir Dolly og er klæðskiptingur.... .